Friday, August 8, 2014

Heimatilbúið pestó

Jæja, nú er löngu orðið tímabært að ég fari að skrifa. Það er svo langt liðið síðan síðast. Í þetta sinn ætla ég að deila með ykkur uppskrift að dýrlegri samloku. Hana ætti ekki að vera flókið að gera en hún er góð tilbreyting frá hversdagslegri grillaðri samloku.
Samloka þessi er samsett úr tveimur brauðsneiðum, (ég notaði lífskorn) avókadói í sneiðum, tómötum í sneiðum, osti og heimagerðu pestói. Þessu skellti ég svo í grillið í nokkrar mínútur. Það má að sjálfsögðu nota hvaða pestó sem er en hérna er uppskriftin sem ég notaði, svona u.þ.b.

1 dl ristaðar kasjúhnetur
1/2 dl sólþurrkaðir tómatar
5-8 ólífur
1-2 hvítlauksrif 
3-4 hnefar af klettakáli
salt og pipar
olía eftir þörfum

Svo má að sjálfsögðu breyta og bæta að vild því engin ein uppskrift er sú eina besta. Ég sett einnig oft 1-2 döðlur því mér finnst þær gefa gott bragð. Ég vil líka minna á að það þarf ekki að rista hneturnar en það gefur öðruvísi bragð sem mér finnst passa betur í þetta pestó. Ég vil einnig benda á að hægt er að borða pestóið með allskonar mat, ekki bara ofan á brauð, það getur einnig verið góð pastasósa, eða sósa á pítsu, lasagna og bara það sem manni dettur í hug. Ég vona að þetta pestó eigi eftir að gleðja marga í framtíðinni, ég veit að það hefur glatt marga hingað til. Þar til næst :)

Birna