Sæl
Ég hef verið upptekin að undanförnu og ekki lengur í próflokafríi. Ég var frekar löt í fríinu og þá sérstaklega að fara að blogga, sem ég ætlaði mér þó. Ég hef áhveðið að vera ekkert að stressa mig á því en langar endilega að skella inn einu og einu öðru hverju. Líka svo ég geti hlakkað til einhvers. Við erum að lesa "Of mice and men" í ensku og ég er að gera verkefni um Salinas Vally og The Great Depression. Milli þess ætla ég að skella inn einni uppskrift sem ég prófaði um helgina og langar til að deila með öðrum. Ég fékk hana af annari síðu en breytti uppskriftinni aðeins til hins betra og hér er hún eins og ég gerði hana.
P.S. Smakkast mjög vel og er einnig heilsusamleg eins og ég vona að fyrirsögnin hafi gefið til kynna.
Holl bounty stykki:
Innihald:
1,5 bollar kókosmjöl
1/4 bolli malaðar kasjúhnetur
1/2 tsk vanilludropar
2 msk hlynsíróp eða annað síróp
ögn af salti
1/2 bolli ferskar döðlur (munið að fjarlægja steinana)
50-100 g Súkkulaði
Aðferð:
1. Setjið kókosmjöl, kasjúhnetur, vanilludropa og síróp í skál og hrærið vel eða notið matvinnsluvél.
2. Blandið döðlunum söxuðum út í í nokkrum skömmtum.
3. Mótið út deiginu ferhyrningslaga skykki og leggið á baka.
4. Þá er bakkinn settur í ískáp og stykkin látin kólna.
5. Á meðan skaltu bræða súkkulaði (ég notaði dökkt 70%) í vatnsbaði.
6. Þá skaltu hella súkkulaðinu á stykkin eða dýfa þeim í bráðið súkkulaðið.
7. Þá eru stykkin látin kólna á ný uns þau verða tilbúin til slátrunar.
Þetta er fljótleg og einföld uppskrift og úr henni fást um 15-20 stykki.
Njótið ;)
No comments:
Post a Comment