Saturday, June 20, 2015

Myntuhrákaka og súkkulaði trufflur - Raw Mint Slices & Raw Chocolate Truffles





Þann 17. júní síðastliðin útskrifaðist ég úr Menntaskólanum á Akureyri og í tilefni af því var haldin stór veisla. Ég sá sjálf um allar veitingar og skemmti mér mikið við að ákveða hvað ég ætti að bjóða upp á. Allt heppnaðist mjög vel og allir voru ánægðir með útkomuna, ég var sérstaklega ánægð með hvernig gekk.
Í framhaldi af því langar mig til að deila tveimur uppskriftum. Ég lagði mikið upp úr því að bjóða upp á fjölbreytta og girnilega rétti en ég bauð m.a. upp á tvo hráfæðisrétti, myntuhráköku og súkkulaðitrufflur. Helsta uppistaðan í þessum réttum eru hnetur en einnig kókosmjöl, döðlur og fleira ljúfengt. Myntukökuna þróaði ég sjálf en hina uppskriftina fékk ég af netinu. Úr afganginum af kreminu bjó ég til súkkulaði konfekt fyllt með hnetusmjöri, svakalega ljúffengt. Hér koma uppskriftirnar.

Myntuhrákaka 

Botn:
3/4 dl ferskar döðlur
1/4 dl sveskjur
1/2 dl kasjúhnetur
1/2 dl heslihnetur
1 dl kókosmjöl
2 msk hrákakó
ögn af sjávarsalti

Millilag:
1 dl kasjúhnetur sem lagðar hafa verið í bleyti í a.m.k. 2 klst
1/2 dl hlynsíróp
60 g ferskt spínat
2 tsk piparmyntudropar
3 msk kókosolía
ögn af sjávarsalti

Krem:
3 msk hrákakó
3 msk kókosolía
2 msk hlynsíróp
2 tsk piparmyntudropar
ögn af sjávarsalti

AÐFERÐ

1. Byrjið á því að búa til botninn. Setjið öll hráefni í matvinnsluvél eða öflugan blandara og blandið vel saman. Þrýstið blöndunni í lítið form og geymið inni í ísskáp eða frysti á meðan fyllingin er undirbúin.
2. Fyrir fyllinguna, setjið útbleyttar kasjúhnetur í matvinnsluvél eða blandara og látið ganga þangað til allt verður silkimjúkt. Bætið síðan restinni af hráefnunum saman við og blandið vel saman. Geymið í frysti á meðan kremið er útbúið, það er mikilvægt því að fyllingin þarf að fá að stífna áður en kremið er sett á.
3. Fyrir kremið, setjið öll hráefni í skál og hrærið vel saman. Hellið yfir fyllinguna. Best er að geyma kökuna í frysti eða ísskáp. Njótið!

Raw mint slices

Base:
3/4 dl fresh dates
1/4 dl prunes
1/2 dl cashews
1/2 dl hazelnuts
1 dl shredded coconut
2 T raw cocoa powder
pinch of salt

Filling:
1 dl soaked cashews
1/2 dl maple syrup
60 g fresh spinach
2 t peppermint extract
3 T coconut oil
pinch of salt

Ganache:
3 T coconut oil
3 T raw cocoa powder
2 T maple syrup
2 t peppermint extract
pinch of salt

PROCESS

1. Start making the base. Blend all ingredients in a food processor or a high speed blender and press into a small springform. Put into the freezer or the fridge while you make the filling.
2. For the filling, put the soaked cashews into a food processor or blender and process until they are smooth, then add the rest of the ingredients and blend. Pour on top of the base and put into the freezer, this is rather important because it's necessary for the filling to set before we pour the ganache over.
3. In a bowl, mix all ingredients for the ganache and pour on top of the filling. Store in the fridge or the freezer and eat with delight.


Súkkulaði trufflur

Fylling:
1 bolli kókosmjöl
2 bollar valhnetur
3/4 bollar kakóduft
1/2 bolli hlynsíróp
1/2 bolli kókosolía
1/2 tsk sjávarsalt
1 msk vanilludropar

Skel:
1 bolli kókosolía
1/2 bolli hlynsíróp
1/2 bolli kakóduft
1/2 tsk salt
1 tsk vanilludropar

AÐFERÐ

1. Byrjið á því að setja kókosmjöl og valhnetur í matvinnsluvél eða blandara og blandið vel. Bætið restinni af því sem á að fara í fyllinguna og blandið áfram. Setjið í ískáp í a.m.k. hálftíma, blandan þarf að fá að stífna.
2. Hrærið saman því sem á að fara í kremið í skál. Mótið kúlur með höndunum og dýfið í kremið. Geymið í ísskáp eða frysti.

RAW CHOCOLATE TRUFFLES

Base:
1 cup shredded coconut
2 cups walnuts
3/4 cups cocoa powder
1/2 cup maple syrup
1/2 cup coconut oil
1/2 t sea salt
1 T vanilla extract

Ganache coating:
1 cup coconut oil
1/2 cup maple syrup
1/2 cup cocoa powder
1/2 t sea salt
1 T vanilla extract

PROCESS

1. Start with the base, mix coconut and walnuts in a food processor or blender and the add the rest of the ingredients. Let set in the fridge for at least a half an hour.
2. Mix all the ingredients for the ganache in a bowl. Make small balls out of the base with your hands and dip into the ganache, preferably using a fork. Place in the fridge or the freezer to set and then enjoy.

From the rest of the ganache I made peanut butter filled chocolate cups, they were absolutely divine. I hope you like this recipes, let my know if you do and for more photos check out my instagram account, https://instagram.com/birnapetursd/

Until next time!






No comments:

Post a Comment