Í dag er sunnudagur og það hefur snjóað í mest allan dag. Þegar ég var búin í skólanum á föstudaginn ákvað ég að búa til múslí, því það var búið. Síðan ákvað ég að baka smákökur. Það tók svolítin tíma að ákveða hvað ætti að baka en þegar ég var byrjuð kom þetta bara. Kökurnar bragðast voða vel, ekki mjög sætar og gætu einnig hentað vel sem orkustykki.
Hér kemur uppskriftin að þessum hollu og góðu kökum:
Innihald:
1/2 dl mjúkar döðlur
1/2 dl rúsínur
1 dl salthnetur
2 dl múslí (ég notaði heimagert en það má nota hvar sem er)
1 1/2 dl heilhveiti
1 tsk lyftiduft
1 hörfræ egg (1 msk hörfræ og 3 msk vatn)
3 msk kókosolía
30 g dökkt súkkulaði (ég notaði 85% Green & Black's)
Aðferð:
- Byrjið á því stilla ofninn á 175°C.
- Setjið döðlurnar og rúsínurnar í matvinnsluvél og maukið vel saman. Færið í skál.
- Setjið salthnetur í matvinnsluvél og vinnið vel, þó ekki svo vel að þær verði að hnetusmjöri. Setjið saman við döðlu- og rúsínumaukið.
- Bætið öllu því sem á að fara í kökurnar saman við, munið að saxa súkkulaðið, gott er hafa bitana ekki allt of stóra því þá eiga kökurnar erfiðara með að haldast saman.
- Þegar deigið er tilbúið mótið þá litlar kökur úr deiginu og leggið á plötur. Bakið í um 12 mínútur.
Here is the recipe:
Ingredients:
1/2 dl soft dates
1/2 dl raisins
1 dl salted peanuts
2 dl muesli (I used my delicious homemade muesli but any muesli or granola is optional)
1 1/2 dl whole wheat
1 tsp baking powder
1 flax egg (1 tbsp flax seeds and 3 tbsp water)
3 tbsp coconut oil
30 g dark chocolate, chopped (I used Green & Black's 85%)
Method:
- Start by preheating the oven up to 175°C (350°F).
- Then place soft dates and raisins in a food processor and bland until soft. Shift into a bowl.
- Put the peanuts in the food processor and mix, don't mix to much. You can also chop them if you like, but in very small pieces.
- Mix all the ingredients together in the bowl. Then make small cookies out of the dough and place on a baking plate. Bake for approximately 12 minutes.
- Enjoy!
No comments:
Post a Comment